Rannsóknarstofa í Þroskaþjálfafræðum

1.jpg

Viðburðir á næstun

Hádegisfyrirlestur 9. nóvember í Stakkahlíð kl. 11:40

Samstarfsaðilar

Átak félag fólks með þroskahömlun

Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð

Landssamtökin Þroskahjálp

Sjónarhóll

Þroskaþjálfafélag Íslands

Þroskaþjálfafræði

Bæklingur Þroskaþjálfafræðinnar við Menntavísindasvið


Um rannsóknarstofuna



Rannsóknarstofa í þroskaþjálfafræðum

Rannsóknarstofa  í þroskaþjálfafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands var formlega stofnuð þann 25. júní 2010.  Rannsóknarstofan er hluti af Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Rannsóknarstofunni er ætlað að vera viðtækur vettvangur rannsókna, ráðgjafar og þróunarstarfs á sviði þroskaþjálfafræða.

Markmið rannsóknarstofunnar er auk þess að stuðla að auknum rannsóknum á þessu sviði með það að leiðarljósi að auka þekkingu og skilning á lífi, aðstæðum og málefnum fatlaðs fólks á öllum aldri. Hlutverk  rannsóknarstofunnar er að:

  • Efla og eiga frumkvæði að rannsóknum og þróunarstarfi á sviðinu með áherslu  á störf  og starfsvettvang  þroskaþjálfa.
  • Efla samstarf við innlenda og erlenda aðila um rannsóknir og þróunarstarf;
    • vera samstarfsvettvangur fræðimanna, háskólakennara, þroskaþjálfa og  fatlaðs fólks,
    • veita nemendum í rannsóknartengdu námi aðstöðu og þjálfun í rannsóknum,
    • styðja við rannsóknarhópa,
    • stuðla að aukinni þekkingu á sviðinu með fræðslu, ráðstefnuhaldi og málstofum.
  • Þróa menntun  fyrir fólk með þroskahömlun og efla rannsóknir og þróunarstarf á því sviði.