Sumarstuðningur ritvers og bókasafns við lokaverkefniRitverið skipuleggur stuðning við þá sem ætla að vinna að lokaverkefnum sínum í sumar, bæði á bakkalár- og meistarastigi, í samvinnu við bókasafnið.
Við kynnum verkefnið þriðjudaginn 15. maí og hittumst hálfsmánaðarlega. Námskeið og vinnustofur um verkefnin. Fræðsla og umræður.
Ritverið verðu út júní með ráðgjöf við þá sem vinna að lokaverkefnum, alltaf einu sinni í viku, alltaf á þriðjudögum. Viðtalstímar nánar auglýstir á bókunarvefnum.
Pantaðu tíma á viðtalsfundasíðunni og þú færð klukkutíma markvissa umræðu og ráðgjöf um verkefnið þitt.
Líttu inn í ritverið á rölti þínu um bókasafnið. Ef ráðgjafi er laus á vaktinni færðu hálftíma.
Ritverið bauð stúdentum að panta viðtal um námskeiðsverkefni sín í fyrsta sinn á vormisseri 2012. Tugir nemenda leituðu til ritvers á misserinu og fengu tækifæri til að ræða verkefni sín markvisst við sérfræðing og fá góðar ábendingar. Ráðgjafarnir lærðu ekki síður margt og efldust að reynslu. Þeir sáu síðan alfarið um ráðgjöf við bakkalárritgerðirnar í vor og vonandi verður framhald á því.
