Ritver Menntavísindasviðs

16.jpg

Sumarstuðningur ritvers og bókasafns við lokaverkefni

Ritverið skipuleggur stuðning við þá sem ætla að vinna að lokaverkefnum sínum í sumar, bæði á bakkalár- og meistarastigi, í samvinnu við bókasafnið.

Við kynnum verkefnið þriðjudaginn 15. maí og hittumst hálfsmánaðarlega. Námskeið og vinnustofur um verkefnin. Fræðsla og umræður.

Nánar í viðburðadagatali

Vantar þig ráð um lokaverkefnið?

Ritverið verðu út júní með ráðgjöf við þá sem vinna að lokaverkefnum, alltaf einu sinni í viku, alltaf á þriðjudögum. Viðtalstímar nánar auglýstir á bókunarvefnum.

Pantaðu tíma á viðtalsfundasíðunni og þú færð klukkutíma markvissa umræðu og ráðgjöf um verkefnið þitt. 

Líttu inn í ritverið á rölti þínu um bókasafnið. Ef ráðgjafi er laus á vaktinni færðu hálftíma.

Viðtal í rauða sófa

Jafningjaráðgjöf við námskeiðsverkefni tókst frábærlega í vor

Ritverið bauð stúdentum að panta viðtal um námskeiðsverkefni sín í fyrsta sinn á vormisseri 2012. Tugir nemenda leituðu til ritvers á misserinu og fengu tækifæri til að ræða verkefni sín markvisst við sérfræðing og fá góðar ábendingar. Ráðgjafarnir lærðu ekki síður margt og efldust að reynslu. Þeir sáu síðan alfarið um ráðgjöf við bakkalárritgerðirnar í vor og vonandi verður framhald á því. 


Velkomin í ritverið sumarið 2012

Sumarstuðningur ritvers og bókasafns við lokaverkefni

Ritverið verður opið í maí og júni og veitir stúdentum stuðning við lokaverkefni sín. Í samvinnu við bókasafnið verður boðið upp á námskeið og vinnustofur á þriðjudögum fyrir hádegi sem hér segir:

15. maí, kl. 10-12: Kynning á sumarstuðningi, kröfur til lokaverkefna, tímaáætlun, vinnubrögð við skrif, ábyrgð höfundar, hlutverk leiðsögukennara og þjónusta ritvers.

29. maí, kl. 9-12: Markmið verkefnis, rannsóknarspurning og skipulag, vinnuáætlun, þjónusta bókasafns.

12. júní, kl. 9-12: Heimildavinna frá A til Ö. APA-kerfið, EndNote Web og allt hitt sem þarf að kunna.

26. júní, kl. 9-12: Skipulag og framsetning texta, málfar, stíll og fágangur. Umræður um verkefnin.

Stúdentar á bakkalárstigi skrá sig á þessari síðu.

Stúdentar á meistarastigi skrá sig á þessari síðu.

Nánari dagskrá í viðburðadagatali hér að neðan.

Eftir hádegið er kostur á viðtalsfundum eða verkstæðistímum, allt eftir áhuga.

Verið velkomin í ritverið!

ATH: Ritverið tekur hlé í prófum NEMA viðtalsfundir vegna lokaverkefna eru í boði á þriðjudögum, sjá viðtalsfundasíðuna.

Vantar þig rannsóknarverkefni?

Ritverið auglýsir eftir stúdentum sem hafa áhuga á að skoða fræðileg skrif, ritun og ritunarkennslu.

  • Hvað vitum við um hvernig fólk skrifar?
  • Getum við treyst því að gamlar ritgerðirnar séu góðar fyrirmyndir?

Upplagt lokaverkefni
á bakkalár- eða meistarastigi.

Hafðu samband.

Ritvinnsla stórra verkefna

Margir eru óöruggir í ritvinnslu þegar kemur að lokaverkefninu, þekkja fáar skipanir og láta útlit og frágang þvælast fyrir sér.

Láttu það ekki henda þig!

  • Lærðu það sem máli skiptir að kunna í ritvinnsluforritinu Orði hér á vef ritversins!.
  • Vefleiðbeiningar -- alltaf til reiðu þegar þér hentar.

Þú munt ekki sjá eftir því.