Flýtileiðir

Miðvikudaginn 16. maí fer fram doktorsvörn við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Þá ver Gabrielle Jarvik Stockmann jarðfræðingur doktorsritgerð sína „Binding koltvíoxíðs í basalti. Niðurstöður tilrauna á rannsóknarstofu“.
Andmælendur eru Benedicte Menez, prófessor við Institut de Physique du Globe de Paris, og Liane G. Benning, prófessor við University of Leeds.
Leiðbeinendur Gabrielle voru Sigurður Reynir Gislason, jarðefnafræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans, Domenik Wolff-Boenisch, sérfræðingur við Jarðvísindastofnun, og Eric Oelkers, Université de Paul Sabatier. Þetta er sameiginleg doktorsgráða frá Háskóla Íslands og Paul Sabatier háskólanum í Toulouse í Frakklandi.
Dr. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor og forseti Jarðvísindadeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst. kl. 15.00.
Fræðasvið Háskóla Íslands
Níu doktorsvarnir í desember - 50 á árinu!
Doktorsvarnir í desembermánuði eru níu talsins og er það lokahnykkurinn á glæsilegu ári í sögu Háskóla Íslands. 50 doktorar brautskrást frá skólanum á 100 ára afmælisárinu og hafa aldrei verið fleiri. Brautskráningar í desember eru fjórar af Verkfræði- og náttúruvísindasviði, tvær af Hugvísindasviði, tvær af Heilbrigðisvísindasviði og ein af Menntavísindasviði.