Lífvísir

1.jpg

Sitthvað til að segja

Aftur kemur texti sem á að segja eitthva
Listar eru góð leið til að segja frá á netinu og oft betri en svona langlokutexti. Margir sem lesa fréttir og viðburði vilja gjarnan renna augunum yfir síðuna og ákveða þannig hvert þeir ætla að fara næst. Stundum er áhugavert að hafa tengil á lista.

Ferðir í ágúst og september

 




Vefurinn Lífvísir er kennslu- og upplýsingavefur í sameindalífvísindum. Honum er ætlað að vera þjónustutæki fyrir nema, vísindamenn í lífvísindum, heilbrigðisstarfsmenn, fyrirtæki í líftækni og heilbrigðisstofnanir. Einnig kemur vefurinn að notum fyrir almenning sem vill afla sér þekkingar á þessu sviði. Undir samheitið sameindalífvísindi falla margar fræðigreinar ,þar á meðal lífefnafræði, sameindalíffræði og erfðafræði. Vefnum er ætlað að styðja við rannsóknir og þróun á þessum sviðum og jafnframt miðla þekkingu í þjóðfélaginu um stöðu mála.

Á Lífvísi er hægt að nálgast gagnabanka af ýmsu tagi og stuttar umsagnir um þá. Þar má nefna gagnabanka yfir erfðaðefnisraðir, prótein og fleira. Einnig er þar kynning á helstu forritum sem notuð eru til greininga á lífsameindum. Tenglar eru í fjölda slíkra banka.

Vefurinn á að vera lifandi hluti af starfi fólks í sameindalífvísindum og markmiðið er að Íslendingar sem afla þurfa upplýsinga í sameindalífvísindum leiti á þenna vef í sem flestum tilvikum.
Upplýsingar um þjónusturannsóknir í klínískri lífefnafræði, sameindalíffræði og erfðafræði sem gerðar eru við Landspítala-Háskólasjúkrahús verða á vefnum. Hægt er að sjá hvað rannsóknirnar þýða, hvernig þær eru gerðar og hvaða upplýsingar þær geta veitt um heilsu einstaklinga og áhættu varðandi sjúkdóma. Þessi þáttur vefsins mun að sjálfsögðu nýtast þeim sem eru að læra um slíkar rannsóknir eða nota þær við greiningu og meðferð sjúklinga.
Með íslenskum vef af þessu tagi er kominn vettvangur til að efla notkun íslenskra hugtaka og heita í sameindalífvísindum.

Leitast er við að hafa sem mest af vefnum á íslensku og m.a. er búið að vinna öflugan orða- og hugtakalista þar sem hægt er að leita fanga. Nemar í heilbrigðisvísindum geta leitað þar fanga.

Ábyrgðarmaður Lífvísis er Jón Jóhannes Jónsson, dósent og forstöðumaður lífefna- og sameindastofu.

Umsjón: Vigdís Stefánsdóttir