
Skrifstofa Íþróttafræðaseturs er staðsett í skólahúsi á Lindarbraut 4.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-12 alla virka daga.


Vatnagarður er nemendagarðurinn í skólahúsi á Lindarbraut 4 á Laugarvatni. Flest eru herbergin 19 m2 með baðherbergi og fataskáp. Nemendur skaffa sjálfir húsgögn á herbergi sín. Ath. að flutningar húsgagna inn og út af herbergjum skulu vera í samráði við umsjónarmann fasteigna og undir eftirliti hans. Sameiginlegt rými í húsinu eru stórt hol, setustofa, borðstofa, eldhús, þvottaherbergi og þurrkherbergi sem og allir gangar skólans. Innangengt er í kennslustofur
skólahússins og þar með t.d. í tölvuver sem alltaf er opið nemendum. Leigusamningur stendur frá 22. ágúst til 20. maí.
Hér getur þú sótt um herbergi á Vatnagarði fyrir næsta skólaár
Suðurherbergi á neðri hæð.

Séð í gegnum herbergin til norðurs.
Horft út um glugga á norðurherbergi.
Baðherbergi á Vatnagarði.