
Skrifstofa Íþróttafræðaseturs er staðsett í skólahúsi á Lindarbraut 4.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-12 alla virka daga.


Laugarvatn er menntasetur með leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og Íþróttafræðasetur Háskóla Íslands. Á þessum vef má finna upplýsingar um nám í íþrótta- og heilsufræði á Laugarvatni, kynningu á aðstöðu og búsetukosti. Hér má einnig finna upplýsingar um ýmsa þjónustu í sveitarfélaginu s.s. leik-, grunn- og menntaskóla, verslun og íþróttaaðstöðu.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti íþróttafræðasetur Háskóla Íslands á Laugarvatni fimmtudaginn 12 apríl. Katrín og fylgdarlið gaf sér góðan tíma til að kynna sér starfsemina. Forráðamenn íþróttafræðaseturs kynntu áherslur í grunn- og framhaldsnámi á sviði íþróttafræða og fóru í gegnum helstu þróunar- og rannsóknarverkefni sem eru í gangi við setrið.